Úthlutað úr Elsusjóð í september

Elsusjóður hefur síðustu ár úthlutað styrk að vori, en í ár tilkynnist að úthlutun úr sjóðnum fer fram 25. september nk.

25. september er afmælisdagur Elsu Guðmundsdóttur, en sjóðurinn var stofnaður árið 2021 með dánargjöf frá Elsu.

Opnað verður fyrir umsóknir í ágúst og verður það auglýst betur þegar nær dregur.

Tilgangur sjóðsins er að veita námsstyrki til fólks sem stundar nám á háskólastigi og er með endómetríósu og til að vekja athygli á hvernig endómetríósa getur haft áhrif á nám fólks með sjúkdóminn. 

Nánar um Elsusjóð

Elsusjóður var stofnaður 2021 með dánargjöf frá Elsu Guðmundsdóttur en hún barðist við endómetríósu. Elsa fæddist í Reykjavík 25. september 1956 og var í doktorsnámi í umhverfisþróunarfræði er hún féll frá 10. janúar 2019.

Hugsun Elsu á bakvið sjóðinn er að ástundun náms getur reynst snúnara fyrir einstaklinga með endó þar sem námið getur orðið slitrótt og tekið lengri tíma.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er hægt að fá með að senda fyrirspurn á endo@endo.is

Frétt frá fyrstu úthlutun Elsusjóðs má finna hér.

Aðrar fréttir