Menntasjóður endókvenna

Styrkir úr Elsusjóði eru veitir einstaklingum sem stunda háskólanám og eru með sjúkdóminn endómetríósu. Hugsunin að baki sjóðnum er að ástundun náms getur reynst snúnara fyrir einstaklinga með endó en fullheilbrigðum, námið getur orðið slitrótt og tekið lengri tíma. Þetta getur aftur haft áhrif á fjármögnun námsins með námslánum. Sjóðnum er ætlað að bæta þetta upp eins og hægt er. Árlega er opnað fyrir umsóknarferli í apríl og úthlutað úr sjóðnum í júní.

 

Elsusjóður var stofnaður árið 2021 með dánargjöf frá Elsu Guðmundsdóttur. Elsa fæddist í Reykjavík 25. september 1956 og var í doktorsnámi í umhverfisþróunarfræði er hún féll frá 10. janúar 2019. Stofnfé sjóðsins var 10 milljónir króna. Fyrsti styrkurinn úr sjóðnum verður veittur á þessu ári.

×

Cart