Kæru félagsmeðlimir.
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að bæklingurinn okkar sem kom út fyrr á árinu hefur verið sendur á allar heilbrigðisstofnanir á landinu. Má þar nefna heilsugæslustöðvar, sjúkrahús, einkareknar stofur og á kvensjúkdómalækna.
Fyrr á árinu sendum við bæklinginn í alla grunn- og framhaldsskóla á landinu ásamt því að dreifa honum í 22 félagsmiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er liður í því að fræða allt landið um endómetríósu.
Finnst þér vinnustaðurinn þinn vanta bækling? Ertu að fara kenna kynfræðslu? Hafðu samband og við sendum þér bæklinginn!