Opið fyrir umsóknir í Elsusjóð
Búið er að opna fyrir umsóknir í Elususjóð fyrir árið 2023. Tilgangur sjóðsins er að veita námsstyrki til fólks sem stundar nám á háskólastigi og
Endósamtökin veita stuðning, uppfræða samfélagið um sjúkdóminn
og stuða að auknum skilningi og bættri heilbrigðisþjónustu fyrir það fólk sem við hann glímir.
Endósamtökin voru stofnuð í október árið 2006. Meginmarkmið Samtaka um endómetríósu er að veita fólki með endómetríósu og aðstandendum þeirra stuðning og fræðslu, auk þess að fræða félagsfólk, almenning, heilbrigðisstarfsfólk og heilbrigðisyfirvöld um endómetríósu. Þá vilja samtökin efla tengsl milli fólks með endómetríósu og heilbrigðisstarfsfólks/yfirvalda og stuðla að bættri þjónustu við fólk með endómetríósu og almennt vinna að bættum hag þeirra.
Skrifstofa samtakanna er staðsett í Sigtúni 42 er opin samkvæmt auglýsingu á Facebook og Instagram síðu samtakanna. Ef þig vantar upplýsingar bendum við á samfélagsmiðla samtakanna og endo@endo.is
Framkvæmdastýra samtakanna er Anna Margrét Hrólfsdóttir. Hægt er að nálgast hana beint á endo@endo.is eða í síma 699-0822.
Búið er að opna fyrir umsóknir í Elususjóð fyrir árið 2023. Tilgangur sjóðsins er að veita námsstyrki til fólks sem stundar nám á háskólastigi og
Aðalfundur Endósamtakanna verður haldinn kl. 20 þann 25. apríl nk. í nýju húsnæði samtakanna að Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Hlekkur á streymi frá fundinum verður
Þann 1. mars síðastliðin frumsýndu Endósamtökin Túrbus – túrtappastrætóinn í tilefni af Endómars. Verkefnið var unnið með Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, aktívista og endókonu og hönnunarstofunni