Ung með endó

Það er mýta að ungt fólk geti ekki verið með endómetríósu. Rannsóknir sýna að 60% fólks með sjúkdóminn finna fyrir einkennum fyrir tvítugt. Á þessari síðu má finna upplýsingar um einkenni, ráðgjöf og hvar stuðning er að finna. Þá er einnig hægt að senda inn fyrirspurnir neðst á síðunni.

Er ég með endó?

Upplifir þú eitthvað af þessu?

Túrverkir og blæðingar

  • Sárir verkir við eða fyrir blæðinar
  • Miklar, langar eða óreglulegar blæðingar (reglulegur hringur er 28-30 dagar)
  • Brún útferð fyrir eða eftir blæðingar

Magi og meltingarfæri

  • Útblásinn magi
  • Hægðatregða og/eða niðurgangur
  • Verkur í meltingarfærum, við þarmahreyfingar eða hægðalosun

Aðrir verkir

  • Verkir tengdir þvagblöðru eða við þvaglát
  • Verkir í kviðarholi
  • Verk sem leiðir aftur í bak og/eða niður aftanverðan fótlegg, gjarnan út frá setttaug

Kynlíf

  • Sársauki við eða eftir kynlíf

Síðþreyta

Van- eða ófrjósemi

Við hvern er best að tala ef ég held að ég sé með endómetríósu?

Foreldra/fjölskyldumeðlimi

  • Þar sem endómetríósa getur gengið í ættir getur verið gott að prófa að tala við foreldra eða aðra fjölskyldumeðlimi. Það getur þó líka verið erfitt ef foreldrar eða fjölskyldumeðlimir hafa aldrei upplifað sára túrverki. Þá hefur verið algengt að þeir telji mann vera að ljúga verkjunum. Það getur því verið erfitt að standa með sér. Því eru við með fleiri aðila sem hægt er að leita til. 

Skólahjúkrunarfræðinga

  • Flestir skólahjúkrunarfræðingar ættu að vera með bæklinginn frá samtökunum. Þar er hægt að fara yfir einkenni og sjá hvort um mögulega endómetríósu sé að ræða. 

Heilsugæslu

  • Að fara fyrst á heilsugæsluna frekar en beint til kvensjúkdómalæknis getur verið betra að því leytinu til að heimilislæknir þekkir læknissöguna þína betur. Telji heimilislæknirinn að um endómetríósu sé að ræða getur hann gefið út beiðni til endó teymisins. 

Samfélag

Samtökin standa fyrir Facebook hópnum Ung með endómetríósu. Hópurinn er hugsaður sem stuðningshópur fyrir 13-21 ára sem eru að glíma við einkenni endómetríósu. Hópurinn er bæði fyrir þau sem eru greind og ógreind.  

Fara í hópinn Ung með endómetríósu


Þá standa samtökin einnig fyrir lokuðum hóp félagsmeðlima sem nefninst Stuðningshópur samtaka um Endómetríósu. Sá hópur er stærsti hópurinn. Til þess að fá aðgang inn í þennan hóp þarf að greiða félagsgjöld til samtakanna.

Fara í lokaðan stuðningshóp samtakanna. 

Reynsla

Mér fannst mjög erfitt þegar ég var unglingur að vera með svona sára túrverki á meðan enginn í kringum mig skildi mig. Flestar vinkonur mínar upplifðu aldrei túrverki á meðan ég grét af sársauka.

Ég óska engum að ganga í gegnum svona verkjaköst án stuðnings. Ég vildi óska þess að svona stuðningsnet hefði verið til þegar að ég var unglingur.

Hafðu samband

Gagnleg skjöl

Verkja- og einkennadagbók

Það er mjög mikilvægt að fylgjast með verkjum og einkennum ef þig grunar að þú sért með endómetríósu.

Dagbókin, sem er sett upp sem ein vika, mun halda utan um miklvægar upplýsingar fyrir þig og kvensjúkdómalækninn þinn
og gæti hjálpað til við að fá greiningu.

Hér er hægt að nálgast Verkja- og einkennadagbókina

Undirbúningsblað fyrir læknisheimsókn

Það er mikilvægt að undirbúa sig vel fyrir læknisheimsókn til að vera viss um að læknirinn fái þær upplýsingar sem skipta máli. Hafðu þetta skjal með þér í læknistímann til þess að þú gleymir ekki mikilvægum upplýsingum.

Hér er Undirbúningsblað fyrir læknisheimsókn

Bæklingur

Hér er bæklingur sem samtökin gáfu út 2020. Hægt er að nálgast prentuð eintök á skrifstofu samtakanna. Eins er hægt að senda tölvupóst og fá hann í bréfpósti.

Bæklinginn má nálgast hér!

Facebook