Adenomyosis

Adenomyosis er ein af birtingamyndum endómetríósu. Þá eru endómetríósufrumur staðsettar inn í legvöðva sem veldur því að hann þykknar.

Einkenni

Blæðingar: eru langar og miklar.  Það fylgja blóðköglar með þeim. Milliblæðingar.

Verkir: eru slæmir trúverkir, verkir tengdir kynlífi, verkur sem leiðir niður í fót, vöðvaverkir, höfuðverkur, þrýstingur í kviði, uppþemba, bólgur og verkir við egglos.

Þvagblaðra: Erfitt að losa þvag, tíð þvaglát og skyndileg þörf fyrir þvaglát
Þarmar: Óreglulegar og sárar þarmahreyfingar, hægðartregða og/eða niðurgangur.

Annað: Stækkað leg, svimi, ógleði, skapsveiflur, depurð og svefnleysi.

Greining og meðferð

Erfitt er að greina adenomyosis og staðfesting á sjúkdómnum fæst yfirleitt ekki nema eftir krufningu á legi í kjölfars legnáms.

Meðferð gengur út á hormónameðferð og verkjameðferð en lækning fæst ekki fyrr en við legnám.