Aðalfundur Endósamtakanna fór fram miðvikudaginn 2. apríl í húsakynnum samtakanna að Sigtúni 42. Fundinum var einnig streymt á netinu og var fundarboð sent út tveimur vikum fyrir fundinn með tölvupósti og á samfélagsmiðlum.
Fundarstjóri, ritari og atkvæðateljari voru kjörnir í upphafi fundar. Fundarstjóri var Ásdís Elín Jónsdóttir, fundarritari var Kristjana Kristjánsdóttir og atkvæðateljari var Arnrún Magnúsdóttir.
Lilja Guðmundsdóttir, formaður stjórnar Endósamtakanna fór yfir skýrslu stjórnar og snerti þar á helstu verkefnum síðasta starfsárs á borð við Endómars, herferðina „Þetta er allt í hausnum á þér“, stuðnings- og fræðslustarf samtakanna og fleira.
Karen Ösp Friðriks, gjaldkeri samtakanna, fór yfir ársreikning og var hann samþykktur af fundinum.
Anna Margrét Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, fór yfir styrktarsamfélag Endósamtakanna, áherslur í starfinu og komandi starfsár.
Til kosninga voru embætti varaformanns og gjaldkera til tveggja ára og embætti ritara og meðstjórnanda til eins árs. Karen Ösp, sitjandi gjaldkeri, gaf kost á sér til áframhaldandi setu og engin mótframboð bárust.
Kosið var og verður stjórn Endósamtakanna fyrir starfsárið 2025-2026 er því eftirfarandi:
Formaður: Lilja Guðmundsdóttir.
Varaformaður: Eydís Sara Óskarsdóttir.
Gjaldkeri: Karen Ösp Friðriksdóttir.
Ritari: Alma Sigurðardóttir.
Meðstjórnandi: Hanna Karen Stefánsdóttir.
Endósamtökin þakka Sigríði Höllu Magnúsdóttur, fráfarandi varaformanni, Kristjönu Kristjánsdóttur, fráfarandi ritara, og Eyrúnu Telmu, fráfarandi meðstjórnanda, kærlega fyrir sín störf og ástríðu í þágu samtakanna.
Í varastjórn bættust við Nína Guðrún Aradóttir, Loubna Anbari, Inga Jóna Óskarsdóttir, Emma Rivard Henriot, Hjördís Bára Hjartardóttir, Helga Sigurbjörg Heide, Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir, Berit Mueller og Heiðdís María Guðmundudóttir.
Auk þeirra sitja áfram í varastjórn Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir, Steinunn Birta Ólafsdóttir, Sigrún Erla Karlsdóttir, Ásdís Elín Jónsdóttir, Arnrún Magnúsdóttir, Hólmfríður Sigurðardóttir, Kolbrún Bjarkey Matthíasdóttir, Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir.
Endósamtökin óska nýjum meðlimum í varastjórn til hamingju með kjörið og hlakka til komandi starfsárs með þessum góða og öfluga hópi.