Laugardaginn 12. september sl. stóðu ToyRun fyrir glæsilegum kótilettudegi á Sjómannastofunni Vör í Grindavík til styrktar Endósamtakanna. ToyRun eru góðgerðasamtök og mótorhjólahópur sem hafa tekið höndum saman og lagt góðum og mikilvægum málefnum lið í gegnum tíðina. Síðustu tvö ár hafa þeir verið í samstarfi við okkur í Endósamtökunum og er þetta því í annað sinn sem ToyRun stendur fyrir kótilettudegi í Grindavík.
Í gær, þriðjudaginn 13. október, afhentu þeir svo samtökunum rausnarlegan styrk að upphæð 700.000 krónur.
Á kótilettudeginum komu gestir alls staðar að af landinu til að njóta góðra veitinga og styrkja gott málefni. Endósamtökin voru á staðnum með túrverkjaherminn og ólukkuhjólið, sem vakti mikla gleði meðal gesta.
Við erum mjög stoltar af samstarfi okkar við ToyRun og þökkum þeim kærlega fyrir mikilvægan stuðning. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við ToyRun 🏍🏍










