Eydís Sara og Inga Vildís hlutu styrk úr Elsusjóð

Þann 25. september var úthlutað í fimmta sinn úr Elsusjóði – menntasjóði endókvenna. Það eru þær Eydís Sara Óskarsdóttir, sem stundar nám í samskiptastjórnun við Háskólann á Bifröst, og Inga Vildís Þorkelsdóttir sem stundar nám í félagsfræði við Háskólann í Roskilde, sem eru styrkþegar þetta árið.

Styrkir úr Elsusjóði eru veitir einstaklingum sem stunda háskólanám og eru með sjúkdóminn endómetríósu (endó). Talið er að endó-sjúkdómurinn snerti líf um 10% kvenna og getur hann haft alvarleg áhrif á lífsgæði og getu til að taka þátt í samfélaginu.

Hugsunin að baki Elsusjóði er að ástundun náms getur reynst snúnari fyrir einstaklinga með endó en fyrir fullheilbrigða, námið getur orðið slitrótt og tekið lengri tíma. Þetta getur aftur haft áhrif á fjármögnun námsins með námslánum. Sjóðnum er ætlað að bæta þetta upp eins og hægt er.

Elsusjóður var stofnaður árið 2021 með dánargjöf frá Elsu Guðmundsdóttur sem sjálf þjáðist af endó-sjúkdómnum. Elsa fæddist í Reykjavík 25. september 1956, hún hafði lokið hagfræðinámi og var í doktorsnámi í umhverfisþróunarfræði er hún féll frá 10. janúar 2019.

Stofnfé sjóðsins var 10 milljónir króna. Íslandsbanki hefur annast ávöxtun sjóðsins með hliðsjón af fjárfestingastefnu sjóða Háskóla Íslands. Lítil ávöxtun hefur orðið á sjóðnum fram að þessu vegna ástands á mörkuðum undanfarin ár. Það er þó von stjórnar sjóðsins að hægt verði að safna fé í sjóðinn þannig að hann eflist og hægt verði að aðstoða sem flestar konur sem sækja um.

Í dag er búið að veita fimm sinnum úr Elsusjóði – menntasjóði endókvenna og hafa níu  umsækjendur hlotið styrk úr honum.

Í stjórn sjóðsins sitja nú þrjár konur, Ingibjörg Garðarsdóttir, formaður, og Hjördís Bára Hjartardóttir fyrir hönd Endósamtakanna, og Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Sögufélags og vinkona Elsu heitinnar.

Frá vinstri: Björgólfur Thorsteinsson, Hjördís Bára Hjartardóttir (stjórn Elsusjóðs), Eydís Sara Óskarsdóttir (styrkhafi), Inga Vildís Þorkelsdóttir (styrkhafi), Guðrún Guðmundsdóttir (stjórn Elsusjóðs). Á myndina vantar Ingibjörgu Elísabetu Garðarsdóttur, formann stjórnar Elsusjóðs.
Eydís Sara Óskarsdóttir og Inga Vildís Þorkelsdóttir hlutu styrk Elsusjóðs 2026. Eydís Sara stundar nám í samskiptastjórnun við Háskólann á Bifröst. Inga Vildís stundar nám í félagsfræði við Háskólann í Roskilde.

Aðrar fréttir