Rafrænn stuðningshópur

Opið er fyrir skráningar í rafrænan stuðningshóp Endósamtakanna sem hefur göngu sína mánudaginn 12. október nk. 

Markmið stuðningshópsins er að styðja fólk með endómetríósu og að þátttakendur kynnist öðrum með svipaða reynslu sem einnig glíma við sjúkdóminn. Hópurinn er fyrir meðlimi Endósamtakanna á öllum aldri og þátttaka er gjaldfrjáls. 

Stuðningshópurinn verður rafrænn og hvetjum við því sérstaklega meðlimi á landsbyggðinni til að taka þátt.

Hópurinn mun hittast í 8 skipti, á mánudögum frá kl. 19-21, frá og með mánudeginum 12. október.

Skráning í hópinn fer fram hér.
Opið er fyrir skráningar til og með fimmtudeginum 1. október.
Undirbúningsviðtöl fara fram vikuna 5.-9. október, rafrænt.

Karen Ösp Friðriks, formaður samtakanna og markþjálfi, og Valgerður Snæbjarnardóttir, ritari samtakanna og iðjuþjálfi, leiða hópinn.

Ef þú hefur fyrirspurn um stuðningshópinn eða hefur þörf fyrir sértækan stuðning til að geta tekið þátt, endilega sendu okkur línu á endo@endo.is

Aðrar fréttir

Ísabella Ögn nýr meðstjórnandi

Á síðasta aðalfundi Endósamtakanna var Hanna Karen Stefánsdóttir kjörin meðstjórnandi samtakanna. Hún þurfti því miður að hverfa frá störfum í sumar og vilja Endósamtökin þakka

Lesa meira »