Mikill aukning hefur orðið í að leitað sé til okkar í opna viðtalstíma og óskir hafa verið uppi um að við fjölgum þeim tímum sem við bjóðum upp á og að þeir séu líka í boði utan hefðbundins dagvinnutíma.
Til að mæta því höfum við núna sett niður opna viðtalstíma aðra hverja viku fram að jólum. Opnu viðtalstímarnir verða til skiptis bæði í eigin persónu og í síma, og aðeins í gegnum síma.
Næsti opni viðtalstimi er miðvikudaginn 23. september milli kl. 16-18, þá verður hægt að bóka símaviðtal við Eydísi Söru, varaformann samtakanna.
Hér má sjá yfirlit yfir dagsetningar vetrarins:
- 23. september (miðvikudagur) milli kl. 16-18. Símaviðtöl.
- 7. október (miðvikudagur) milli kl. 13-15. Bæði viðtöl á skrifstofu samtakanna og símaviðtöl.
- 21. október (miðvikudagur) milli kl. 16-18. Símaviðtöl.
- 3. nóvember (þriðjudagur) milli kl. 13-15. Bæði viðtöl á skrifstofu samtakanna og símaviðtöl.
- 18. nóvember (miðvikudagur) milli kl. 16-18. Símaviðtöl.
- 2. desember (miðvikudagur) milli kl. 13-15. Bæði viðtöl á skrifstofu samtakanna og símaviðtöl.
- 16. desember (miðvikudagur) milli kl. 16-18. Símaviðtöl
Nú er hægt að óska eftir viðtali á tiltekinni dagsetningu, hvort sem um er að ræða í eigin persónu eða símaviðtal.
Um opnu viðtalstímana
Í stjórn Endósamtakanna sitja konur með mikla reynslu af endómetríósu og baráttunni sem henni fylgir. Við bjóðum upp á spjall í von um að hjálpa meðlimum samtakanna að fóta sig í þessari vegferð og finna að þær séu ekki einar.
Fyrir hverja eru viðtalstímarnir?
Opnu viðtalstímarnir eru fyrir alla meðlimi Endósamtakanna. Þeir henta t.d. einstaklingum sem eru með formlega greiningu, þeim sem eiga enn eftir að fá greiningu eða eru í greiningarferli, aðstandendum, foreldrum og öllum sem hafa spurningar tengdar endómetríósu og því sem sjúkdómnum fylgir.
Hvar fara viðtölin fram? Viðtölin fara fram í húsnæði Endósamtakanna í Sigtúni 42, 105 Reykjavík eða í gegnum síma. Hægt er að óska eftir viðtali með því að fylla út eyðublað hér. Einnig er hægt að mæta á staðinn á auglýstum tíma, en þau sem hafa óskað eftir tíma fyrirfram ganga fyrir.


