REYKJAVÍKURMARAÞONIÐ – TAKK TEAM ENDÓ

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram um helgina í rigningu og roki. Hlauparar og pepparar á hvatningarstöðvum létu þó veðrið ekki stoppa sig, en um 16.000 manns tóku þátt í hlaupinu í ár.

Hátt í 40 hlauparar völdu að vera í Team ENDÓ í ár og hlaupa þannig til styrktar Endósamtakanna. Alls söfnuðust tæplega 2 milljónir en fjármagnið sem safnaðist fer meðal annars í aukna fræðslu fyrir ungmenni um endó.

Endósamtökin vilja þakka öllum sem hlupu í Team ENDÓ og þeim fjölmörgu sem hétu á þau og hvöttu þau til dáða. Það er dýrmætt að hafa svona öflugan hóp til að ekki aðeins safna styrkjum fyrir samtökin heldur einnig til að vekja athygli á málefninu og taka þátt í að auka þekkingu samfélagsins alls á endómetríósu.

Takk TeamENDÓ!

Aðrar fréttir

Legkökur Lindu

Linda Hrönn Björgvinsdóttir hefur vakið mikla athygli á aðventunni fyrir frumlegt og skemmtilegt framtak. Hún tók upp á því að baka og selja óhefðbundnar kökur

Lesa meira »