Viðburður í maí – gönguferð í Laugardalnum

Við fögnum hækkandi sól og hlýnandi veðri með fyrsta útiviðburði ársins. 

Þriðjudaginn 12. maí leiðum við gönguferð um Laugardalinn. Gönguferðin hefst í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, og verður haldið af stað kl. 17. 

Linda Hrönn Björgvinsdóttir, varastjórnarkona samtakanna, leiðir gönguferðina en hver og ein getur farið á sínum hraða og stjórnað vegalengdinni sjálf.

Að gönguferðinni lokinni verður boðið upp á létta hressinu í Mannréttindahúsinu.

Gönguferði er opin öllu þannig endilega gríptu með vinkonur eða fjölskyldumeðlimi.

Aðrar fréttir

Ísabella Ögn nýr meðstjórnandi

Á síðasta aðalfundi Endósamtakanna var Hanna Karen Stefánsdóttir kjörin meðstjórnandi samtakanna. Hún þurfti því miður að hverfa frá störfum í sumar og vilja Endósamtökin þakka

Lesa meira »