Aðalfundur Endósamtakanna 2026

Aðalfundur Endósamtakanna fór fram í gær, miðvikudaginn 1. apríl, í Mannréttindahúsinu. Fundinum var einnig streymt á netinu og var fundarboð  sent út tveimur vikum fyrir fundinn með tölvupósti og á samfélagsmiðlum.

Fundarstjóri, ritari og atkvæðateljari voru kjörnir í upphafi fundar. Fundarstjóri var Anna Margrét Hrólfsdóttir, fundarritari var Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir og atkvæðateljarar voru Karen Ösp Friðriks og Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir.

Eydís Sara, varaformaður stjórnar, fór yfir ársskýrslu samtakanna fyrir árið 2025. Árið 2025 var kraftmikið ár í starfi samtakanna og snerti þar á helstu verkefnum ársins. Þar ber til dæmis að nefna: 

  • Fræðsluátak fyrir ungmenni í grunn- og framhaldsskólum.
  • Stórkostlegan árangur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, en 55 hlauparar hlupu fyrir samtökin 2025 og söfnuðust um 2,5 milljónir.
  • Stórsókn í kynningarmálum samtakanna með ráðningu kynningarstýru.
  • Fjölmarga og fjölbreytta viðburði ársins, en samtökin hafa aldrei staðið fyrir jafnmörgum viðburðum á einu ári.
  • Hagsmunagæslu og hagsmunabaráttu ársins sem, líkt og fyrri ár, var lagt mikinn kraft í.

Karen Ösp, gjaldkeri samtakanna, fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2025. 
Tekjur samtakanna jukust um 16% á milli ára og er það að stórum hluta að þakka mánaðarlegum styrktaraðilum samtakanna sem eiga sífellt stærri sess í að tryggja öflugt starf fyrir fólk með endó.

Ársreikningurinn var samþykktur af fundinum.

Eydís Sara fór svo yfir lagabreytingar. Engar lagabreytingatillögur lágu fyrir fundinum enda fór fram aukaaðalfundur 1. apríl sl. Sem var eingöngu tileinkaður lagabreytingum en stjórn hefur unnið að heildarendurskoðun laga samtakanna með aðstoð frá lögfræðing ÖBÍ. Eydís fór yfir helstu breytingar sem voru gerðar á lögunum ásamt því að kynna skilgreiningu á hlutverkum stjórnar og framkvæmdastjóra. Hlekk á þær er að finna hér.

Til kosninga voru þrjú sæti í aðalstjórn til tveggja ára. Samkvæmt lögum samtakanna er ekki kosið til ákveðinna embætta heldur er það í höndum stjórnar að skipta með sér verkum að aðalfundi loknum. 

Fjögur framboð bárust og hlutu þær Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir, Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir og Emma Rivard Henriot kjör, en þær sátu allar í stjórn á síðasta tímabili.

Stjórn Endósamtakanna 2026-2027 skipa því þær Karen Ösp Friðriks, Eydís Sara Óskarsdóttir, Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir, Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir og Emma Rivard Henriot.

Einnig var varastjórn samtakanna samþykkt á fundinum til eins árs, hægt er að sjá hverjar skipa hana hér.

Aðrar fréttir

Legkökur Lindu

Linda Hrönn Björgvinsdóttir hefur vakið mikla athygli á aðventunni fyrir frumlegt og skemmtilegt framtak. Hún tók upp á því að baka og selja óhefðbundnar kökur

Lesa meira »