Nú nálgast Endómars óðfluga, en mars er alþjóðlegur mánuður tileinkaður vitundavakningu um endómetríósu. Í ár fagna Endósamtökin einnig 20 ára starfsafmæli sínu, en samtökin voru stofnuð árið 2006. Að því tilefni höfum við sett saman fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir Endómars.
Síðustu 20 ár einkennst af eldmóði, samstöðu, baráttu, sigrum og ótal augnablikum sem hafa mótað það sem við stöndum fyrir í dag.
Líf með endómetríósu getur verið flókið og erfitt og réttindabaráttan getur verið þung, en á þessum tímapunkti viljum við gleðjast saman og fagna því hvað endósamfélagið er einstakt. Í ár miða allir viðburðir að því að stuðla að samtali og samstöðu og síðast en ekki síst, skemmta okkur saman!
Hér má sjá yfirlit yfir þá viðburði sem eru á döfinni.


Staðsetning:
Mannréttindahúsið, Sigtúni 42.
Dagsetning:
Fimmtudaginn 17. mars kl. 19:30

Staðsetning:
Sykursalurinn Grósku
Dagsetning:
Fimmtudaginn 26. mars kl. 19:30


