Endósamtökin bjóða uppá Jóga Nidra með Lindu Sæberg mánudaginn 23. Febrúar kl 20:00 í Lotus Þjálfun, Hátúni 6b.
Jóga Nidra er mjúk og djúp slökun þar sem þú færð að hvíla þig inn í ástand milli vöku og svefns. Með rólegri leiðsögn fær líkami, hugur og taugarkerfi að sleppa tökum.
Frítt fyrir meðlimi Endósamtakanna, 3500 kr fyrir aðra. Árgjaldið fyrir meðlimi er 3800 og þá er frítt eða afsláttur á alla viðburði á vegum félagsins.
Það er nauðsynlegt að skrá þátttöku.
Takmarkað pláss er á viðburðinum og því mikilvægt að skrá sig og láta vita ef maður hyggst svo ekki nýta plássið.
Athugið að skráning er ekki gild fyrr en þátttakendur hafa fengið sendan staðfestingapóst.


