Opinn viðtalstími með Kareni Ösp

Við höldum áfram að bjóða upp á opna viðtalstíma við stjórnarkonur samtakanna. 

Í stjórn Endósamtakanna sitja konur með mikla reynslu af endómetríósu og baráttunni sem henni fylgir. Við bjóðum upp á spjall í von um að hjálpa meðlimum samtakanna að fóta sig í þessari vegferð og finna að þær séu ekki einar.

Þriðjudaginn 24. febrúar, milli kl. 13 og 15 bjóðum við upp á opinn viðtalstíma við Kareni Ösp, gjaldkera Endósamtakanna.
Karen hefur meðal annars reynslu af: 

  • Adenomyosis
  • Brottnámi eggjastokka og legnámi
  • Ófrjósemi
  • Hormónamígreni
  • Blæðingum frá unga aldri
  • Gigt

Fyrir hverja eru viðtalstímarnir?

Opnu viðtalstímarnir eru fyrir alla meðlimi Endósamtakanna. Þeir henta t.d. einstaklingum sem eru með formlega greiningu, þeim sem eiga enn eftir að fá greiningu eða eru í greiningarferli, aðstandendum, foreldrum og öllum sem hafa spurningar tengdar endómetríósu og því sem sjúkdómnum fylgir.

Hvar fara viðtölin fram? Viðtölin fara fram í húsnæði Endósamtakanna í Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Nóg er að mæta á staðinn milli 13 og 15. Einnig er hægt að fá símaviðtal. Til að bóka símaviðtal sendirðu tölvupóst á netfangið endo@endo.is með símanúmerinu þínu.

Við vonum að sem flestir meðlimir samtakanna nýti sér þessa opnu viðtalstíma.

Aðrar fréttir

Legkökur Lindu

Linda Hrönn Björgvinsdóttir hefur vakið mikla athygli á aðventunni fyrir frumlegt og skemmtilegt framtak. Hún tók upp á því að baka og selja óhefðbundnar kökur

Lesa meira »