Lilja Guðmundsdóttir hefur stigið til hliðar sem formaður Endósamtakanna.
Lilja hefur setið í stjórn samtakanna frá árinu 2019 og tók við hlutverki formanns árið 2022. Hún hafði tilkynnt á síðasta aðalfundi að hún hyggðist aðeins sitja í eitt ár til viðbótar, en tók ákvörðun í desember að láta af störfum fyrr en áætlað var.
Í starfi sínu í stjórn samtakanna hefur Lilja tekið þátt í uppbyggingu samtakanna og átt ríkan þátt í baráttunni fyrir bættri heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með endómetríósu.
Við þökkum Lilju kærlega fyrir sitt framlag og óskum henni velfarnaðar öllum framtíðarverkefnum.
Eydís Sara Óskarsdóttir, varaformaður samtakanna, hefur tekið við formannsskyldum fram að næsta aðalfundi sem haldinn verður í apríl og verður nánar auglýstur síðar.


