Toy Run styrkja Endósamtökin

Endósamtökin hafa tekið við rausnarlegum styrk frá Toyrun Iceland sem ætlaður er til fræðslu um endómetríósu fyrir ungmenni í grunn- og framhaldsskólum.
 
Toyrun Iceland eru góðgerðarsamtök sem hafa lagt mikilvægum málefnum lið á síðustu árum. Í ár völdu þeir að styrkja Endósamtökin og héldu glæsilegan kótilettudag þann 30. ágúst í Grindavík þar sem allur ágóði rann til Endósamtakanna.
 
Endósamtökin eru einstaklega þakklát fyrir stuðninginn og spennt fyrir áframhaldandi samstarfi við Toyrun Iceland 🏍️

Aðrar fréttir