Úthlutað úr Elsusjóð

Þann 25. september síðastliðinn fór fram þriðja úhlutun í Elsusjóði og hlutu tvær styrk í ár, þær Hjördís Bára Hjartardóttir og Selma Dís Hauksdóttir.

Styrkir úr Elsusjóði eru veitir einstaklingum sem stunda háskólanám og eru með sjúkdóminn endómetríósu. Hugsunin að baki sjóðnum er að ástundun náms getur reynst snúnara fyrir einstaklinga með endó en fullheilbrigðum, námið getur orðið slitrótt og tekið lengri tíma. Þetta getur aftur haft áhrif á fjármögnun námsins með námslánum. Sjóðnum er ætlað að bæta þetta upp eins og hægt er. 

Elsusjóður var stofnaður árið 2021 með dánargjöf frá Elsu Guðmundsdóttur. Elsa fæddist í Reykjavík 25. september 1956 og var í doktorsnámi í umhverfisþróunarfræði er hún féll frá 10. janúar 2019. Stofnfé sjóðsins var 10 milljónir króna. 

Í stjórn Elsusjóðs sitja Guðfinna Birta Valgeirsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir.

Við óskum Hjördísi Báru og Selmu Dís innilega til hamingju með styrkinn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Elsusjóð við að styðja einstaklinga með endómetríósu til náms. 

Aðrar fréttir

Legkökur Lindu

Linda Hrönn Björgvinsdóttir hefur vakið mikla athygli á aðventunni fyrir frumlegt og skemmtilegt framtak. Hún tók upp á því að baka og selja óhefðbundnar kökur

Lesa meira »