Búið er að opna fyrir umsóknir í Elsusjóð fyrir árið 2025. Tilgangur sjóðsins er að veita námsstyrki til fólks sem stundar nám á háskólastigi og er með endómetríósu og til að vekja athygli á hvernig endómetríósa getur haft áhrif á nám fólks með sjúkdóminn. Í ár verða 300.000 krónum úthlutað úr sjóðnum.
Umsóknarskilyrði
Umsóknarfrestur er til miðnættis 11. september. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila rafrænt á elsusjodur@endo.is. Úthlutun fer fram á afmælisdag Elsu, 25. september nk.
Fylgiskjöl skulu innihalda:
1.Staðfestingu á sjúkdómsgreiningu
2.Staðfestingu á námi á háskólastigi
3. Stutta greinagerð um hvernig sjúkdómurinn hefur áhrif á nám viðkomandi (hámark 300 orð).
Um Elsusjóð
Elsusjóður var stofnaður 2021 með dánargjöf frá Elsu Guðmundsdóttur en hún barðist við endómetríósu. Elsa fæddist í Reykjavík 25. september 1956 og var í doktorsnámi í umhverfisþróunarfræði er hún féll frá 10. janúar 2019.
Hugsun Elsu á bakvið sjóðinn er að ástundun náms getur reynst snúnara fyrir einstaklinga með endó þar sem námið getur orðið slitrótt og tekið lengri tíma.
Nánari upplýsingar um sjóðinn er hægt að fá með að senda fyrirspurn á endo@endo.is
Frétt úr fyrstu úthlutun Elsusjóðs má finna hér.
