Soroptimistaklúbbur Austurlands styrkir fræðsluverkefni Endósamtakanna
Endósamtökin hafa tekið við rausnarlegum styrk frá Soroptimistaklúbbi Austurlands sem ætlaður er til fræðslu um endómetríósu fyrir ungmenni í grunn- og framhaldsskólum á Austurlandi.
Markmið verkefnisins er að fræða ungmenni um sjúkdóminn endómetríósu. Um 10% kvenna og einstaklinga sem fæðast með innri kvenlíffæri eru talin vera með sjúkdóminn og mikilvægt er að fræða almenning um sjúkdóminn svo hægt sé aðgreina sjúkdóminn snemma og koma þannig í veg fyrir að hann valdi varanlegum skaða. Styrkurinn gerir Endósamtökunum kleift að hefja fræðsluátak sitt með fræðslu fyrir ungmenni á Austurlandi.
„Við höfum lengi viljað fara af stað með fræðslu til ungmenna um allt land til að stuðla að snemmgreiningu og aukinni vitund á þeim úrræðum sem eru í boði. Við vorum því einstaklega þakklátar að heyra frá Soroptimistum á Austurlandi og vonum að samtök í öðrum landshlutum íhugi að styrkja málefnið svo hægt sé að fara með fræðsluna um allt land,“ segir Anna Margrét Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Endósamtakanna.
Á síðasta ári frumsýndu samtökin heimildamyndina Tölum um ENDÓ – ekki bara slæmir túrverkir, og var hún sýnd á RÚV í mars. Í kjölfarið hefur mikil eftirspurn verið eftir aukinni fræðslu í skólum um allt land.
Saga félagskonu hafði áhrif á valið
Soroptimistaklúbbur Austurlands styrkir reglulega mikilvæg málefni sem samræmast gildum þeirra. Þær höfðu verið að kynna sér margvísleg málefni á svipuðum tíma og fræðslumynd Endósamtakanna var sýnd á RÚV. Á fundi klúbbsins í apríl deildi svo ein af félagskonum þeirra sögu dóttur sinnar, baráttu hennar við sjúkdóminn og fordómana og vanþekkinguna sem hún hafði mætt. Í framhaldinu var ákveðið að styrkurinn færi til Endósamtakanna þar sem klúbburinn vildi leggja sitt á vogarskálarnar við að upplýsa ungmenni á Austurlandi um sjúkdóminn.
„Við sátum allar með kusk í augum eftir frásögn hennar – það þurfti ekki frekari umræðu,“ segir Þórunn Hálfdánardóttir, formaður Soroptimistaklúbbs Austurlands.
Um Soroptimista
Soroptimistar eru alþjóðasamtök kvenna sem hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti. Soroptimistar hvetja til jafnræðis og jafnréttis, vinna að því að skapa öruggt og heilsusamlegt umhverfi, auka aðgengi að menntun, efla leiðtogahæfni, valdeflingu og hagnýta þekkingu til sjálfbærrar framtíðar. Markmið Soroptimista er að stuðla að heimsmynd þar sem konur og stúlkur ná í sameiningu fram því besta sem völ er á, bæði sem einstaklingar og sem hópur, og þar sem þær geta látið drauma sína rætast og til jafns við aðra skapað sterk og friðsöm samfélög um allan heim. Soroptimistar á Austurlandi eru nú 29 talsins.