Nú þegar sólin er farin að láta sjá sig í ríkari mæli er kjörið að draga fram hlaupaskónna og sólgleraugun og hefja undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fer fram laugardaginn 23. ágúst nk.
Endósamtökin hafa tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoninu síðustu ár og eru gífurlega þakklát öllum þeim sem hafa hlaupið, skokkað og rölt fyrir hönd samtakanna. Fjármagnið sem safnast í Reykjavíkurmaraþoninu skiptir miklu máli fyrir starfsemi samtakanna, en samtökin leggja mikinn metnað í stuðning, fræðslu og hagsmunabaráttu fyrir meðlimi.
Fræðsla fyrir ungmenni og stuðningur í menntun
Það sem safnast hefur í Reykjavíkurmaraþoninu síðustu ár hefur nýst Endósamtökunum einstaklega vel í margvíslegum verkefnum. Sem dæmi um það sem styrkir hafa nýst í er t.d.
– framleiðsla á fræðslu- og heimildamynd um endómetríósu. Myndin heitir Tölum um ENDÓ – ekki bara slæmir túrverkir og var frumsýnd í Bíó Paradís í apríl 2024 og er nú aðgengileg á RÚV.
– aukið kynningar- og fræðslustarf samtakanna.
– fjölbreytta viðburði fyrir meðlimi Endósamtakanna og aðstandendur þeirra.
– öfluga réttinda- og hagsmunabaráttu fyrir fólk með endó þar sem samtökin beita sér fyrir styttri greiningartíma og bættri þjónustu við fólk með endó.
Í ár mun allt fjármagn sem safnast í maraþoninu nýtast í tvö mjög mikilvæg áherslumál Endósamtakanna. Annars vegar verður það nýtt í að standa fyrir fræðslu fyrir ungmenni um allt land um endó, þar sem markmiðið er að auka þekkingu og vitund á sjúkdómnum og stuðla að snemmgreiningu og auknum skilning. Hins vegar fer það í Elsusjóð, menntasjóð kvenna með endómetríósu, sem hefur það að markmiði að styðja konur með endó til háskólanáms.
Við leitum að öflugu fólki í Team ENDÓ
Nú leitum við að öflugu fólki til að vera með í Team ENDÓ í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Líkt og fyrri ár munu Endósamtökin vera með hvatningastöð á hlaupaleiðinni þar sem hlauparar eru hvattir með ráðum og dáðum. Einnig fá allir sem hlaupa fyrir samtökin veglegan gjafapoka í þakklætisvott.
Við minnum á að öll geta tekið þátt á sínum forsendum. Hægt er að fara mismunandi vegalengdir, allt frá 3km upp í 42km, og það getur hver og einn farið á sínum hraða.
Ef þú ert hlaupari, skokkari, röltari eða hreinlega bara til í að vera með í fjörinu þá hvetjum við þig til að skrá þig og safna áheitum.
Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á www.rmi.is.
Okkur þætti svo vænt um að þú sendir okkur línu á endo@endo.is ef þú ætlar að hlaupa fyrir okkur svo við getum sent þér þakklætisvott og sagt frá stuðningi þínum á okkar miðlum.