Endósamtökin auglýsa eftir þátttakendum í stuðnings- og fræðsluhóp sem hefst í febrú
Hópurinn mun hittast í 6 skipti, á þriðjudögum frá 19:30-21 í Sigtúni 42 frá og með 18. febrúar.
Markmið hópsins er að styðja við fólk með endómetríósu og að þátttakendur kynnist öðrum með svipaða reynslu sem einnig glíma við sjúkdóminn. Hópurinn er fyrir meðlimi Endósamtakanna á öllum aldri, og er þátttaka gjaldfrjáls.
Skráning í hópinn fer fram hér: SKRÁNING
Oddný Jónsdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur, Lilja Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi og formaður Endósamtakanna og Karen Ösp Friðriks, markþjálfi og gjaldkeri Endósamtakanna, leiða hópinn.
Athugið, takmarkað pláss!
Þessi stuðningshópur er styrktur af Heilbrigðisráðuneytinu.
Aðgengi
Hóparnir fara fram í Mannréttindahúsinu í Sigtúni 42. Þar er mjög gott aðgengi fyrir hreyfihamlað fólk að öllum rýmum, þar með talið að salerni.
Ef þú hefur fyrirspurn um aðgengi eða þarft sértækan stuðning til að geta tekið þátt, endilega hafðu samband á endo@endo.is.