Afgreiðslu- og opnunartími yfir hátíðirnar

Afgreiðsla pantana fram að jólum og opnunartími skrifstofu yfir hátíðirnar

Pantanir úr vefverslun verða afgreiddar alla virka daga fram að Þorláksmessu. Hér að neðan má sjá helstu dagsetningar sem gott er að hafa í huga til að allir pakkar skili sér fyrir jól.

Sækja á skrifstofuna
Hægt er að sækja greiddar pantanir úr vefverslun á skrifstofu samtakanna í Sigtúni 42 á eftirfarandi dögum:
Mánudaginn 16. desember: Milli kl. 9:30 og 15:30
Þriðjudaginn 17. desember: Milli kl. 9:30 og 15:30
Miðvikudaginn 18. desember: Milli kl. 9:30 og 15:30
Fimmtudaginn 19. desember: milli kl. 9:30 og 15:30
Föstudaginn 20. desember: milli kl. 9:30 og 12.
Mánudaginn 23. desember (Þorláksmessu): LOKAÐ

Síðustu skiladagar fyrir sendar pantanir

Pósturinn
Pantanir sem berast fyrir kl. 12, föstudaginn 20. desember og eiga að afhendast með Póstinum skila sér fyrir jól (samkvæmt upplýsingum frá Póstinum).

Dropp
Pantanir sem á að senda með Dropp innan höfuðborgasvæðisins, á suðvesturhornið (Akranes, Borganes, Hveragerði, Selfoss, Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Stokkseyri, Reykjanes), Akureyri og Egilsstaði þurfa að berast fyrir kl. 12, föstudaginn 20. desember.

Pantanir sem á að senda með Dropp á aðra staði á landsbyggðinni þurfa að berast fyrir miðnætti fimmtudaginn 19. desember.

Opnunartími skrifstofunnar yfir hátíðirnar.

Skrifstofa Endósamtakanna er lokuð yfir hátíðirnar. Skrifstofan lokar frá og með föstudeginum 20. desember og opnar aftur þriðjudaginn 7. janúar.

Lágmarksvöktun verður á netfanginu endo@endo.is ásamt því að hægt er að hafa samband við okkur í gegnum samfélagsmiðlana okkar. 

Við vonum að þið eigið öll ljúfar og góðar stundir yfir hátíðirnar og við hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.

Aðrar fréttir

Fréttir af aðalfundi

Aðalfundur Endósamtakanna fór fram þriðjudaginn 25. apríl kl.20 í húsakynnum samtakanna að Sigtúni 42. Fundinum var streymt og fengu félagar í samtökunum hlekk í tölvupósti

Lesa meira »