Það hefur verið nóg að gera undanfarnar mánuði eftir að skrifstofan opnaði eftir sumarið, má þar allra helst nefna að samtökin sendu frá sér bækling til allra grunn- og framhaldsskóla á landinu. Bæklingurinn fer yfir einkenni og staðreyndir endómetríósu.
Nokkrir kennarar hafa óskað eftir fleiri bæklingum fyrir kynfræðslu og í líffræði sem við tökum fagnandi. Ef ykkur vantar fleiri eintök ekki hika við að hafa samband við okkur.
Eins fengum við frábær viðbrögð frá félagsmiðstöðvum á höfuðborgarsvæðinu en 22 félagsmiðstöðvar fengu bæklinga til sín.