Átaksvikan 2010 Vikan 8.-14. mars 2010 er alþjóðleg átaksvika til að vekja athygli á endómetríósu. Íslensku samtökin taka nú fyrst þátt í átaksvikunni. Fjölbreytt atriði verða til að vekja athygli á endómetríósu: Laugardaginn 13. mars kl. 11.00-13.00 verður haldinn fræðslufundur í Hringsal Landspítalans við Hringbraut. Fyrirlesarar verða Auður Smith kvensjúkdómalæknir, Árný Ingvarsdóttir sálfræðingur, Magnús Ólason yfirlæknir verkjasviðs á Reykjalundi og við heyrum reynslusögu frá konu með endómetríósu. Einnig verður tími fyrir umræður og fyrirspurnir. Fræðslubæklingur um endómetríósu er kominn út og er hægt að nálgast hann hér: Átaksvikan verður kynnt í fjölmiðlum í vikunni. Þann 22. febrúar var opna í DV tileinkuð endómetríósu. Landspítali-Háskólasjúkrahús við Hringbraut verður lýstur upp með gulu ljósi í vikunni en gulur litur er einkennislitur endómetríósusjúkdómsins. |


