ÁTAKSVIKAN 8-14. mars 2010 Alþjóðleg átaksvika til að vekja athygli á endómetríósu verður 8.-14. mars 2010. Íslensku samtökin taka núna í fyrsta skipti þátt í átaksvikunni. Fræðslufundur verður haldin laugardaginn 13. mars kl. 11.00-13.00 í Hringsal Landspítalans. Fyrirlesarar verða Auður Smith kvensjúkdómalæknir, Árný Ingvarsdóttir sálfræðingur, Magnús Ólason yfirlæknir verkjasviðs á Reykjalundi og einnig heyrum við reynslusögu frá konu með endómetríósu. Fræðslubæklingur um endómetríósu kemur út í mars og verður honum dreift á heilsugæslustöðvar, í apótek og víðar. Hann má nálgast hér: Landspítali-Háskólasjúkrahús við Hringbraut verður lýstur upp með gulu ljósi í vikunni en gulur litur er einkennislitur endómetríósusjúkdómsins. Átaksvikan verður kynnt í fjölmiðlum, nú þegar hefur opna í DV verið tileinkuð endómetríósu (DV 22. febrúar). |


