Almennt
Sjúkdómurinn getur haft í för með sér veruleg vandamál.
Niðurstaða evrópskar könnunar, sem gerð var nýlega meðal kvenna með endometríósu, leiddi í ljós eftirfarandi:
73% kvenna eru ófærar að taka þátt í félagslífi nokkra daga í hverjum mánuði.
80% kvennanna sögðu að endometríósa truflaði svefn og gæði hans.
35% kvennanna svöruðu að endometríósa hefði áhrif á samlíf þeirra og væri jafnvel orsök hjónaskilnaðar.
80% kvennanna höfðu verið fjarverandi frá vinnu á sl. 5 árum vegna endometríósu og af þeim hafði:
14% verið sagt upp starfi, þær misst það með öðrum hætti eða neyddar til að fara á eftirlaun löngu fyrir eðlilegan tíma.
8% skiptu um atvinnu vegna vandamála í tengslum við fjarvistir.
14% höfðu dregið úr vinnu og farið í hlutastarf. Alls höfðu 66% þeirra sem tóku þátt í könnunni fengið ranga sjúkdómsgreiningu í upphafi.