Heillaráð Gillian úr bókinni Þú ert það sem þú borðar 

Drekktu volgt vatn á morgnana, gott að setja skvettu af sítrónusafa út í.
Ekki drekka mikinn vökva með mat. Það þynnir út meltingarensímin og maturinn meltist ekki eins vel og ella ef of mikill vökvi er drukkinn með mat. Best er að drekka hálftíma fyrir eða eftir mat en ekki með honum.
Tyggðu hægt og njóttu matarins.
Borðaðu rólegur. Líkaminn meltir mat ekki eins vel ef maður er mjög æstur þegar maður borðar.
Maturinn á ekki að vera of heitur og ekki of kaldur. Ískaldur matur getur veikt líffærin og sjóðandi heitur matur getur brennt vélindað.
Skreyttu diskinn þinn og njóttu þess að borða.
Skiptu um fæðu og reyndu að borða ekki sömu fæðu á hverjum degi. Ágætt að miða við að borða sama matinn á fjögurra daga fresti.
Hlustaðu á kroppinn þinn. Taktu eftir því í hvaða mat þig langar og láttu það eftir þér. Þetta á þó ekki við óhollustu (nema í hófi).
Ensím eru lykillinn að uppsogi næringarefna og góðri heilsu. Finnast t.d. í spíruðum fræjum, nýju grænmeti og ávöxtum, hnetum og fræjum.
Hættu að fasta. Byrjaðu daginn ávallt á heilsusamlegum og saðsömum morgunverði.
Borðaðu lítið á kvöldin. Snæddu seinustu máltíð dagsins amk. tveimur klukkustundum áður en þú ferð að sofa.
Borðaðu mikið af hvítkáli, blómkáli, spergilkáli og rósakáli.
Drekktu grænmetið þitt. Fáðu þér ferskan grænmetissafa einu sinni í viku.
Blandaðu fæðunni rétt saman. Ávextir + kjöt/fiskur = vindgangur. Ávextir einir og sér = enginn vindgangur.
Nýrnanudd.
Regluleg og hófleg hreyfing.
Baðnudd. Áður en þú ferð í bað eða sturtu skaltu fá þér þvottastykki, bleyta það í heitu vatni og nudda allan kroppinn með því. Byrjaðu á fótunum og farðu upp eftir fótleggjunum, skrokknum og handleggjunum, alltaf í átt að hjartanu.
Húðburstun. Burstaðu húðina einu sinni í viku með þurrum húðbursta. Þetta kemur sogæðakerfinu á hreyfingu.
Snemma í háttinn. Lifrin og gallblaðran stýra afeitrunarferli líkamans yfirleitt á milli 23 og 2 á kvöldin.
Vertu bara. Taktu þér 5 mínútur á hverjum morgni bara til þess að vera. Ekki hugsa, ekki gera neitt, vertu bara.
Gillian McKeith stýrði þáttunum Þú ert það sem þú borðar sem voru ma. sýndir á Stöð 2. Hún hefur gefið út samnefnda bók sem hefur verið þýdd á íslensku. Sjálfsagt eru hugmyndir hennar of öfgakenndar fyrir marga en bókin hennar er uppfull af fróðleik um næringargildi matar og hvaða áhrif hann hefur á líkamann. Hún er mjög góð til þess að fletta upp í og menn verða svo bara að velja og hafna hvað þeir hafa áhuga á að prófa og hvað ekki.
 
laugardagur 11 september 09 2010
September - 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>