Ráðleggingar um breytingar á mataræði Það er best að byrja smátt og taka eitt atriði fyrir í einu. Gott er að byrja á því að skoða kryddhillurnar og skipta út þeim kryddum sem ekki eru „hrein“ eða aukaefnalaus. Hrein krydd eru t.d. öll krydd frá Pottagöldrum, lífrænt ræktuð krydd, Maldon salt og pipar og Herbamare. Öll þessi krydd fást í Krónunni. Hagkaup er oft með meira úrval af Pottagaldra kryddum en Krónan. Það fer svo eftir mataræði hvers og eins hvað er best að taka út næst. Til að nefna dæmi þá er gott að skipta hvítu pasta út fyrir brúnt, hvítum grjónum fyrir brún, hvítu brauði fyrir dekkra og trefjameira brauð o.s.frv. Brúnt pasta er til bæði heilhveiti og spelt og er misgróft. Það er líka misgott og það er ágætt að prófa sig áfram þangað til maður finnur týpu sem manni líkar við. Brúnu hrísgrjónin eru líka misjöfn. Ég kaupi alltaf brún grjón frá Uncle Ben‘s sem fást í Bónus. Það eru til aðrar týpur í Krónunni en ég hef ekki komist upp á lag með að nota þær. Brauð borða ég helst ekki en ef ég geri það borða ég sólkjarnabrauð. Þá borða ég hrökkbrauð sem er mun léttara í maga og veldur ekki þembu eins og venjulegt brauð gerir. Ef fólk er vant að borða mikið brauð getur það verið mikil áskorun að hætta því. Gerið í brauðinu þenur magann út og magamálið verður meira. Það er því hætt við því að fólk sé sísvangt þegar það hættir að borða brauð á meðan magamálið er að minnka. Það er ágætt að undirbúa það og vera með eitthvað gott til að nasla á ef maður er svangur, t.d. hnetur, fræ, ávexti, grænmeti eða harðfisk. Ég held mig frá rauðu kjöti en borða það samt annað slagið. Það er auðvitað allt gott í hófi og algjör óþarfi að hætta alveg að borða það ef manni finnst það mjög gott. Ágætt að gera það bara sjaldnar og leggja frekar áherslu á hvítt kjöt og fisk dags daglega. Ég kaupi lífrænt ræktað þegar ég get. Það er dýrara en það er t.d. hægt að vera í áskrift á Græna hlekkinum (http://www.graenihlekkurinn.is/) Úrvalið þar er oft betra en í verslunum og verðið er hagstæðara. Ég reyni að sneiða alveg hjá mjólkurvörum. Mér finnst hinsvegar smjör gott og borða það alveg og ég á það til að nota ost og sýrðan rjóma í matargerð. Það er ekki mikið úrval af mjólkurvörum sem eru án lactosa á Íslandi og það getur verið erfitt að sneiða algjörlega hjá þeim. Ég mæli þó ekki með því að þið notið sojavörur, sérstaklega ekki ef þið eruð að reyna að verða óléttar, þar sem soja getur valdið ófrjósemi (grein um það í Heilsuhringnum 2008). Þarna verður maður soldið að finna sjálfur hvað hentar manni þar sem úrræðin eru fá. Ég hef aldrei getað borðað mjólkurvörur og það var því ekki mikil áskorun að taka þær út. Ég nota rísmjólk í staðinn fyrir mjólk og ef valið er á milli soja eða venjulegra mjólkurvara þá vel ég venjulegar mjólkurvörur. Þau eiturefni sem notuð eru í mat og ég reyni alltaf að forðast eru MSG og aspartam. MSG (oft merkt E-621 á matvælum) er í ótrúlegustu hlutum en það er orðið mun auðveldara að fá MSG lausan mat en var fyrir nokkrum árum. Aspartam er sætuefni sem er t.d. í öllum diet gosdrykkjum. Það er líka í Herbalife svo eitthvað sé nefnt. Þetta efni er mjög umdeilt. Sumir vilja meina að það sé engin hætta af því en svo eru til rannsóknir sem tengja efnið við aukna tíðni einhverfu. Vandamálið við aukaefni í mat er að þó svo þau séu kannski hættulaus í litlu magni þá eru þau svo víða að flestir neita þeirra í miklu magni. Þá eru þau svo ný að áhrif langvarandi notkunar hafa ekki verið fyllilega sönnuð. Ég forðast því þessi efni eins og ég get og ef mig langar t.d. í gosdrykk þá fæ ég mér „sykurkók“ en ekki diet. Þó sykurinn sé ekki hollur þá er hann náttúrulegt efni sem líkaminn getur unnið úr. Þetta er auðvitað ekki tæmandi listi en vonandi nýtist hann sem flestum sem eru að byrja á því að skoða mataræðið sitt. Ef þið hafið einhverjar spurningar er velkomið að senda þær á endo@endo.is og við aðstoðum ykkur eftir bestu getu. Munið bara að gefa ykkur tíma og taka bara eitthvað eitt fyrir í einu. Það valda því fæstir að umbylta öllu mataræðinu sínu á einni nóttu og það er því gott að gefa sér tíma til þess að prófa sig áfram og þróa með sér nýjan lífsstíl. |


