Almennt um hreyfingu Lýðheilsustöð hefur gefið út bæklinginn "Ráðleggingar um hreyfingu" Þar má nálgast upplýsingar um ávinning reglulegrar hreyfingar fyrir heilsuna. "Regluleg hreyfing hefur fjölþættan ávinning fyrir heilsuna eins og vísindarannsóknir staðfesta. Þeir sem hreyfa sig reglulega minnka meðal annars líkurnar á að fá kransæðasjúkdóma, heilablóðfall, sykursýki af tegund 2, sumar tegundir krabbameina, stoðkerfisvandamál og geðröskun. Umfram allt eykur regluleg hreyfing líkurnar á að fólk lifi lengur og við betri lífsgæði en annars." (úr Ráðleggingum um hreyfingu). Bæklinginn má panta á vef Lýðheilsustöðvar á síðunni "Útgefið efni" |


