Óhefðbundnar lækningar
Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun
Aðeins eru rúm tíu ár síðan höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð var fyrst kynnt hér á landi en sú aðferð hefur notið sívaxandi vinsælda. Aðferðin er hæg og án nokkurra átaka en virðist samt hafa djúpstæð áhrif á líkama fólks.
Hlutverk höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara er að greina þau líffæri og svæði líkamans þar sem einhver spenna er fyrir hendi. Merðferðin er þannig áhrifarík gegn höfuðverkjum, bakverkjum, astma, spennu, kvíða, ótta svefntruflunum, síþreytu, sleni, þreytu í fótum, vöðvabólgu, hálsríg, gyllinæð, ristilbólgu o.fl. Meðferðin tekur um klukkustund í einu og fer þannig fram að þú leggst fullklædd á bekk og sá sem veitir meðferðina beitir mildri snertingu á höfuð, spjaldhrygg eða annars staðar á líkamann eftir því hvað á við hverju sinni. Oft er einnig létt snerting á bak, brjóst eða fætur.
Misjafnt er hvort einstaklingur kemur oft, sumir koma einu sinni, aðrir koma oftar. Aðferðin getur nýst fólki á öllum aldri, allt frá ungabörnum til eldra fólks. (tekið að hluta til úr grein í Blaðinu miðvikudaginn 20. júní 2007)
Félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara
Bowen tækni
Hjálpar til við meðhöndlun flestra þekktra vandamála, svo sem bak- og hálsverki, hnévanda, íþróttameiðsla, axlameina, tennisolnboga og öndunarvandamála. Einkenni eins og síþreyta, heymæði, höfuðverkur, nýrnavandamál og vandamál tengd sogæðakerfinu hafa öll brugðist vel við meðferð.
Ilmmeðferð (aroma therapy)
nátengd grasaækningum, notaðar olíur úr plöntum og jurtum sem oftast eru eimaðar úr blómum þeirra, ávöxtum, trjástofnum, fræjum, blöðum, berki eða rótum.
gegn sýkingum, streitu, húðstjúkdómum, ónæmisvandamálum o.fl.
innöndun, inntaka eða gegnum húð. Gerð er sérstök ilmolíublanda fyrir hvern einstakling og fer þá innihald blöndunnar eftir því hvað líkami hvers og eins kallar á.
dæmi: baðsölt, olíur, heitir og kaldir bakstrar með olíum í.
Sogæðanudd
Milt, slakandi en mjög áhrifaríkt nudd sem eykur virkni sogæðakerfisins, bætir vökvajafnvægi líkamans, losar stíflur og flýtir fyrir hreinsun oglosun úrgangsefna úr líkamanum.
Ein aðaláhrif sogæðanudds eru á ónæmiskerfið, það bætir heilsu og vellíðan heildrænt og jafnvægisstillandi fyrir líkama, huga og sál.
Hnykklækningar (chiropractic)
Aðlögun á hrygg og liðamótum líkamans
Áhrif á taugakerfið og náttúrulegar varnir líkamans
Bakverkir, höfuðverkir og önnur meiðsl
Næst stærsta heilsusvið í heiminum
Þreifað á hrygg - leitað eftir skriði eða vöðvaójafnvægi
Stundum tekið röntgen
Smáskammtalækningar (homeopathic remedies)
Hómópatía er meðferð sem byggist á reglunni ‘líkt læknar líkt’. Líkaminn er í eðli sínu fær um að lækna sig sjálfur. Sjúkdómar geta hrjáð okkur þegar orkukerfið er í ójafnvægi af ýmsum ástæðum. Einkenni þeirra eru í raun viðbrögð okkar við áreiti og álagi og eru merki um viðleitni líkmans til að ná aftur jafnvægi og heilsu. Heilsa einstaklings ræðst því af hæfileikanum til að aðlagast þessu áreiti og álagi. Þetta er skýringin á því að hómópatar lækna ekki fólk heldur leitast við að koma lífsorkunni í jafnvægi svo manneskjan sjálf geti náð heilsu á sinn eigin hátt.
Hómópatísk meðferð getur verið vandasamt verk og ætti einungis að vera í höndum faglærðra hómópata.
Meðferð hjá hómópata byggist á viðtölum þar sem leitast er við að fá sem skýrasta mynd af einstaklingnum frá ýmsum sjónarhornum. Farið er mjög nákvæmlega yfir líkamleg, andleg og tilfinningarleg einkenni og byggist hin hómópatíska meðferð á þeim upplýsingum sem þá liggja fyrir. Lengd meðferðar er jafn breytileg og einstaklingarnir eru margir. Þó má segja að því lengur sem veikindin hafa varað því lengri tíma megi búast við að meðferðin taki.
Hómópatar nota svokallaðar remedíur, örefni sem í stórum skömmtum myndu kalla fram hjá heilbrigði fóki svipuð einkenni og þeim er ætlað að bæta. Þær eru unnar úr jurta-, dýra- og steinaríkinu og eru notaðar það mikið þynntar að ekki er talað um þær sem eiginlegt efni, heldur hvata. Remedíur eru með öllu skaðlausar og valda ekki aukaverkunum. Ef tekin er remedía sem svo sýnir sig að hentar ekki tilteknum einkennum er ekkert að óttast. Remedíur eru eins og lyklar. Sé röngum lykli beitt lýkst skráin ekki upp.
Lista yfir starfandi félaga í Organon, félagi hómópata má finna á vefslóðinni homopatar.is.
Nálastungur (acupuncture)
Þetta er kínversk aðferð sem þróast hefur í meira en 5000 ár og sem stjórnar flæði lífsorkunnar um líkamann. Aðferðin minnkar sársaukaupplifun og eykur ónæmi. Aðferðin notar meira en 1000 punkta á líkamanum sem hægt er að örva til að auka flæði lífsorkunnar. Yfirleitt eru notaðar nálar en einnig raförvun, hátíðnibylgur, laser og hiti. Merðferðin er í flestum tilfellum sársaukalaus og tekur um 45 – 60 mínútur í einu.
Fleira:
dáleiðsla, hreyfifræði (kinesiology), taugameðferð (neural therapy), shiatsu, sállækningar, pólameðferð, punktaþrýstingur, reiki, heilun, rafsegulbylgjugreining, kristalla- og gimsteinameðferð, ljósa- og hljóðlækningar,