Ekki er hægt að tala um eina ákveðna meðferð þar sem einkenni geta verið mismunandi en meðferð felst að miklu leyti í verkjalyfjum, langvarandi töku getnaðarvarnapillunnar, sérhæfðri hormónameðferð (nokkrar mismunandi tegundir og styrkleiki lyfja), skurðaðgerðum þar sem fjarlægður er endometríósuvefur í sem mestu magni og, sem allra síðasta úrræði, brottnám legs og/eða eggjastokka. Allar aðferðirnar hafa í för með sér aukaverkanir. |


