Ranghugmyndir

Þetta sjúkdómsástand hefur í gegn um tíðina verið skilgreint á misgóða vegu í tengslum við blæðingar, ófrjósemi og verki. Ein goðsögnin er sú að verkir séu eðlilegur hluti af lífi konunnar. Þegar því er haldið fram við ungar stúlkur og konur þá fælir það þær frá því að leita sér hjálpar og við það seinkar greiningu sjúkdómsins oft um allmörg ár. Algengt er að það taki 6-10 ár þar til greiningin fæst, en til þess þarf skurðaðgerð sem nefnist kviðarholsspeglun. Að meðaltali má segja að verkir hjá konu með endometríósu vari í 13 daga í hverjum mánuði.

laugardagur 11 september 09 2010
September - 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>