Fréttir
02.05.10
Sumarfrí

Stjórnin er nú á leiðinni í sumarfrí. Við munum þó fylgjast vel með spjallinu og póstinum okkar og þið þurfið því ekki að hika við að hafa samband ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar eða stuðning. Verið er að ljúka við stefnumótunarvinnu fyrir næstu 3 ár hjá félaginu og munum við setja stefnumótunina inn þegar hún er tilbúin.

Talað var fyrir þingsályktunartillögu um endómetríósu á Alþingi í vikunni sem er að líða. Í bígerð er stofnun þverpólitísks hóps sem mun vinna að bættum hagsmunum kvenna innan heilbrigðiskerfisins og verður endómetríósa fyrst á dagskrá. Það mál mun skýrast á næstu dögum og við flytjum fréttir af því síðar.

Steven Kennedy mun koma til landsins í byrjun september. Starf næsta vetrar mun því byrja á öflugri fræðslu um sjúkdóminn fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Þá ætlum við að halda aðalfund félagsins í haust. Þar þarf ma. að kjósa nýja stjórn og hvetjum við áhugasamar til þess að bjóða fram krafta sína.

Við þökkum gott samstarf í vetur. Gleðilegt sumar!

F.h. stjórnar,

Erla formaður

laugardagur 11 september 09 2010
September - 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>