Fréttir
08.03.10
Átaksvikan er hafin!

Átaksvikan 8.-14. mars til að vekja athygli á endómetríósu er hafin!

Á laugardaginn 13. mars verður fræðslufundur í Hringsal Landspítalans við Hringbraut kl. 11-13. Fyrirlesarar verða Auður Smith kvensjúkdómalæknir, Árný Ingvarsdóttir sálfræðingur, Magnús Ólason yfirlæknir verkjasviðs á Reykjalundi og einnig heyrum við reynslusögu frá konu með endómetríósu.

Í morgun var viðtal við Kristínu Ósk í Zúúber á FM og verður aftur innlegg hjá Heiðari Austmann eftir hádegi.

Fræðslubæklingurinn er kominn út og Landspítalinn er lýstur upp með gulu ljósi.

Sjáumst á fræðslufundinum á laugardaginn!

kv. Stjórnin

laugardagur 11 september 09 2010
September - 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>